Þriðja íslenska söguþingið verður haldið í Reykjavík dagana 18.-21. maí 2006. Fyrsta íslenska söguþingið var haldið árið 1997 og annað árið 2002. Eins og fyrr er það markmið þeirra sem að þinginu standa að gefa fræðimönnum tækifæri til þess að kynna sínar nýjustu rannsóknir og leiða saman sagnfræðinga - og aðra áhugamenn um sögu - til þess að ræða það sem hæst ber í faginu.
Sagnfræðistofnun, Reykjavíkur-Akademían, Sögufélag, Sagnfræðingafélag Íslands og Félag sögukennara standa að þriðja íslenska söguþinginu. Þessir aðilar hafa skipað sína fulltrúa í nefnd þingsins. Þar sitja Einar Hreinsson, Heiða Björk Sturludóttir, Jón Þór Pétursson, Már Jónsson, Ólafur Rastrick og Þórunn Guðmundsdóttir. Verkefnisstjóri þingsins er Hilma Gunnarsdóttir.
Líkt og á fyrri þingum er boðið upp á fjölbreytta og spennandi dagskrá í formi málstofa, stakra fyrirlestra og pallborðsumræðna. Dagskrá munu fara fram í Öskju, náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands - og hátíðarsal Háskólans.
Auk fræðilegrar dagskrár verður boðið upp á ýmislegt annað þinggestum til gagns og gamans - meðal annars móttökur síðdegis og ýmsar kynningar á sögutengdu efni sem nánar verður greint frá síðar.
Einn erlendur gestafyrirlesari mun sækja okkur heim að þessu sinni flytja Minningarfyrirlestur Jóns Sigurðssonar. Hún heitir Liz Stanley og er prófessor í Edinborg en hún hefur aðallega fengist við kvenna - og kynjasögu.
Landsbankinn er bakhjarl þriðja íslenska söguþingsins 2006 og styrkir þingið af myndarskap með ýmsum hætti.
Fyrirlesarar eru beðnir að skila útdráttum úr einstökum fyrirlestrum og lýsingu á málstofum til birtingar á heimasíðu og í dagskrárriti fyrir 5. mars. Skal hver útdráttur helst ekki vera lengri en 400 orð.
Fullt ráðstefnugjald er 7000 krónur en skráðir nemendur við Háskóla Íslands og eldri borgarar greiða aðeins 5000 krónur.